Fab Lab Ísafjörður (Ísafjarðarbær i )

Här hittar du information om Fab Lab Ísafjörður. Du kan eventuellt se öppettider, adress, karta, hemsida, telefonnummer och andra kontaktuppgifter. Den här platsen har visats 52 gånger och uppdaterades senast kl. 19:48 den 28 juli år 2021.

Logotype

Beskrivning

Í smiðjunni eru fimm tölvustýrðar (cnc) vélar sem hægt er að nýta til ýmiskonar sköpunar.

Roland Modela Fínfræsari, er lítill yfirfræsari með mikla nákvæmni. Hann er notaður til að fræsa út fíngerða smíði svo sem rafrásir í tvívídd, plastmót og gifsmót í þrívídd og fleira. Við höfum einnig nýtt hann til að skanna litla þrívíða hluti inn. Vinnuflötur fræsarans er 203X152X60 mm

Roland Vínilskeri er tölvustýrður dúkaskeri sem er mikið notaður til að skera út límmiða og gluggafilmur. Hann er einnig hægt að nýta til að skera út mjúkar rafrásir. Vinnuborð dúkaskerans er 120cm á breidd og eins langt og dúkrúllan leyfir.

Epilog 40w laserskeri er laserskurðarvél sem getur skorið með mikilli nákvæmni efni eins og acrylplast, þunnan krossvið, balsavið, pappír, leður og fleira. Skerann er einnig hægt að nýta til að grafa í þau efni sem áður hafa verið nefnd sem og gler og húðaða málma. Vinnuborð skerans er 30x60cm, en einnig er hægt að setja í hann sívala hluti allt að 50cm langa og 20cm í þvermál. Þetta má til dæmis nýta til að skera í glös og blómavasa.

Shopbot fræsari er stór fræsari sem hefur vinnuflöt uppá 150x300cm. Þessi fræsari er mikið notaður til að skera út húsgögn úr tré, stór mót fyrir plastsmíði og fleira. hann vinnur á þrem ásum þannig að hægt er að fræsa út í 180° þrívídd í honum. Önnur efni sem þessi fræsari hefur verið nýttur í eru ýmiskonar plastefni og þunnir málmar.

Cube þrívíddarprentari prentar hluti úr ABS plasti. Vinnusvæði prentarans er 25x25x25 cm og hann nýtist til að smíða flókna smáhluti sem erfitt er að fræsa eða skera út. Þar sem erfitt er að skilja að hægt sé að prenta þrívíða hluti þá ætlum við að setja myndband hérna á síðuna sem sýnir hvernig tækið vinnur.

Að auki eru í Fab Lab á Ísafirði fullkomið rafeindaverkstæði og saumavél.

Stefnt er að því að bæta við fleiri tækjum með tímanum.

Allar vélar í Fab Lab eru valdar með einfaldleika að leiðarljósi og í flestum tilvikum eru hlutirnir sem búnir eru til, prentaðir frá PDF skjali. Teikningar að hlut sem gerður er í Fab Lab má gera í hvaða teikniforriti sem er, Autocad, Inventor, Corell, en við bendum þeim sem ekki hafa aðgengi að dýrum teikniforritum á ókeypis hugbúnað svo sem Inkscape (www.inkscape.org) fyrir tvívíddar teikningar og Google Sketchup (sketchup.google.com) eða Autodesk 123D (www.123dapp.com) fyrir þrívíddarteikningar.

Við bjóðum ekki upp á námskeið að svo stöddu, en allir sem koma í Fab lab fá handleiðslu á staðnum og aðstoð við að komast í gang með verkefnin sín. Við aðstoðum einnig við teikningavinnu og gefum góð ráð um efnisval og hönnun. Við mælum eindregið með að þeir sem ekki hafa reynslu af tölvuteikningu nýti sér kennsluefnið sem Fab Lab á Íslandi er búið að koma á vefinn, en mikið af kennsluefni liggur nú þegar fyrir á www.fablab.is/wiki . Veljið íslensku sem tungumál til að komast í íslenska hlutann.

Fyrir þá sem vilja formlegri kennslu er hægt að snúa sér til Menntaskólans á Ísafirði, sem býður uppá áfanga í Fab Lab.

Address

Torfnes

400 Ísafjarðarbær

Kontaktuppgifter

Hemsida

Facebook

Telefon: 522 9463

Karta

Kategorier

Skola

Närliggande platser

Gamla sjúkrahúsið - Ísafjörður Culture House (178 m)
Arnardalur - Fjósið, veitingasalur (194 m)
Arnardalur - Fjósið, veitingasalur (194 m)
Húsið (206 m)
Húsið (206 m)
Hótel Edda Ísafirði (212 m)
Hótel Edda Ísafirði (212 m)
Húsið Veitingahús Ísafjörður. (212 m)
Húsið Veitingahús Ísafjörður. (212 m)
Menntaskólinn á Ísafirði (216 m)

Närliggande orter

Ísafjörður (3,1405 km)
Hnífsdalur (3,9461 km)
Súðavík (7,9545 km)
Bolungarvík (10,9256 km)
Flateyri (17,5980 km)
Suðureyri (19,0521 km)
Þingeyri (27,5908 km)
Bíldudalur (48,2270 km)
Tálknafjörður (59,0003 km)
Patreksfjörður (66,2589 km)

Du kan föreslå förbättringar för denna plats, genom att lägga till / uppdatera beskrivning, adress, position, öppettider med mera. Du kan även begära att platsen tas bort från denna webbplats. Vill du föreslå förbättringar för denna plats eller begära radering? eller föreslå en ny plats?